01.08.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Rúnarsson í Tindastól (Staðfest)

Davíð Þór í leik með Þrótti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Tindastóll fékk góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í 2. deildinni í gærkvöld þegar framherjinn Davíð Þór Rúnarsson gekk til liðs við félagið frá Þrótti Reykjavík.
Davíð Þór Rúnarsson er 31 árs framherji sem hefur leikið með Fjölni undanfarin tvö sumur, en fór til Þróttar í lok apríl.
Hann lék tíu leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni í sumar auk eins leiks í VISA-bikarnum en hefur alltaf glímt við meiðsli og ekki geta beitt sér að fullu.
Hann hefur í heildina leikið 45 leiki í efstu deild og skorað í þeim sjö mörk.
Áður en hann kom til Fjölnis hafði hann leikið með Víkingum í tvö ár en þar áður með Fjölni og Tindastóli auk Neista og Hvöt.