Fotbolti.net
01.08.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Gabriel Heinze til Marseille (Staðfest)

Gabriel Heinze.

Gabriel Heinze.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínumaðurinn Gabriel Heinze er genginn í raðir Marseille í Frakklandi en félagið ætlar sér stóra hluti í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu og Heinze er tíundi leikmaðurinn sem kemur til þeirra í sumar.
Hann er 31 árs gamall varnarmaður sem kostar félagið 1,5 milljón evra og skrifaði undir þriggja ára samning við franska félagið.

Heinze hafði komið til Real Madrid frá Manchester United árið 2007 en hann hafði áður leikið í Frakklandi með Paris Saint Germain á árunum 2001-2004 og vann með því liði franska bikarinn árið 2004.

,,Ég átti frábær ár í fótboltanum hjá Real,\" sagði Heinze. ,,En líf fótboltamannsins byggist á breytingum á félögum og ég er ánægður með að vera kominn hingað og mun gera mitt besta.\"

Heimild: UEFA.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.