Fotbolti.net
01.08.11 - 00:00
Alexander Freyr Tamimi

Colin Marshall í Víking (Staðfest)

Colin Marshall er genginn til liðs við Víking.

Colin Marshall er genginn til liðs við Víking.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Englendingurinn Colin Marshall spilaði sinn síðasta leik fyrir BÍ/Bolungarvík í dag þegar liðið tapaði 4-1 gegn KR í undanúrslitum Valitor bikarsins.
Marshall, sem er einn af bestu leikmönnum BÍ/Bolungarvíkur, er haldinn til úrvalsdeildarliðs Víkings í Reykjavík þar sem hann mun klára tímabilið og freista þess að hjálpa liðinu að halda sæti sínu.

Marshall hefur staðið sig mjög vel á Vestfjörðum og verið einn af lykilmönnum Skástriksins svokallaða. Hann hefur spilað í öllum 14 leikjum liðsins í deildinni sem og bikarleikjunum fimm.

Víkingur er sem stendur í næst neðsta sæti Pepsi deildarinnar með 7 stig eftir 12 umferðir, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.