Fotbolti.net
01.08.11 - 17:10
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Mirko Vucinic til Juventus (Staðfest)

Mirko Vucinic er farinn til Juventus

Mirko Vucinic er farinn til Juventus

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið Juventus hefur fengið sóknarmanninn snjalla Mirko Vucinic til félagsins frá AS Roma.
Vucinic, sem er 27 ára gamall kemur til Juventus fyrir 15 milljónir evra en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið í dag.

Hann hefur verið einn af lykilmönnum Roma síðustu ár sem lenti í 6. sæti á síðasta tímabili.

Roma ætti þó að vera í fínum málum því liðið fékk til sín spænska framherjann Bojan Krkic frá Barcelona á dögunum sem kemur til með að fylla í skarð Vucinic.

Mirko lék 200 leiki fyrir Roma á þeim fimm árum sem var hjá félaginu og skoraði þá 63 mörk.

Það hefur verið nóg að gera hjá Juventus í félagaskiptiglugganum í sumar, en þegar hefur félagið fengið til sín Andrea Pirlo, Reto Ziegler, Marco Motta, Simone Pepe, Fabio Quagliarella, Alessandro Matri, Arturo Vidal og Stephan Lichsteiner.

Heimild: Heimasíða Juventus

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.