Fotbolti.net
01.08.11 - 17:38
Elvar Geir Magnússon

Wayne Routledge til Swansea (Staðfest)

Routledge í leik með QPR síðasta vetur.

Routledge í leik með QPR síðasta vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Swansea City í ensku úrvalsdeildinni hafa náð samkomulagi um kaup og kjör við vængmanninn Wayne Routledge sem kemur frá Newcastle United.
Swansea var búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverðið og mun Routledge skrifa undir þriggja ára samning á morgun.

Leroy Lita, sóknarmaður Middlesbrough, er einnig á leið til Swansea en hann mun gangast undir læknisskoðun á morgun. Swansea borgar 1,75 milljón punda fyrir Lita.

Líklegt er að Routledge og Lita spili á miðvikudaginn þegar Swansea mætir Glasgow Celtic í æfingaleik.

Brendan Rodgers, stjóri Swansea, hafði fyrr í sumar tryggt sér þjónustu Danny Graham, Steven Caulker og José Moreira.

Routledge hóf sinn feril hjá Crystal Palace áður en hann hélt til Tottenham Hotspur 2005. Þar fótbrotnaði hann og náði sér ekki á strik. Eftir lánsdvalir hjá Portsmouth og Fulham fór hann til Aston Villa.

Frá Villa var hann lánaður til Cardiff City áður en hann gekk í raðir Queens Park Rangers og svo Newcastle. Hann fór aftur til QPR á lánssamningi seinni hluta síðasta tímabils og hjálpaði QPR að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.