01.09.06 - 12:17
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Olivier Bernard til Newcastle (Staðfest)

Oliver Bernard er kominn aftur til Newcastle

Mynd: Getty Images

Newcsatle hafa gengið frá samningum við varnarmanninn Oliver Bernard á nýjan leik eftir að samningurinn hans við Rangers var riftur.
Skosku risarnir riftu samning við franska leikmanninn í gærkvöldi, rétt áður en að félagsskiptaglugginn lokaði og því mátti hann snúa aftur á St James’ Park.
Bernard kom fyrst til Newcastle frá Lyon fyrir sex árum síðan en fór síðan til Southampton á láni í janúar 2005.
Eftir 145 leiki fyrir Newcastle fór þessi 26 ára gamli leikmaður til Rangers síðasta sumar en spilaði aðeins 15 leiki fyrir þá.
Á undirbúningstímabilinu æfði hann með Sheffield United á meðan hann var sterklega orðaður við Leeds þar sem hann var á leiðinni frá Ibrox.