Fotbolti.net
01.09.07 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Rosenior til Reading og Seol Ki-Hyeon til Fulham (Staðfest)

Seol Ki-Hyeon hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik í Reading treyju.

Seol Ki-Hyeon hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik í Reading treyju.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hafa gengið frá kaupum á Liam Rosenior frá Fulham en Seol Ki-Hyeon fer í hina áttina.
Ekki hefur verið gefið út hvort einhverjir peningar fari á milli félaganna en báðir leikmennirnir gerðu þriggja ára samning.

Rosenior er 23 ára enskur bakvörður og á að baki nokkra landsleiki með U-21 árs landsliði Englendinga. Seol er 28 ára S-Kóreu maður en hann kom til Reading seinasta sumar eftir að hafa spilað með Wolverhampton Wanderers til tveggja ára.

Lawrie Sanchez hefur haft í nógu að snúast á seinasta degi ágústmánaðar en Danny Murphy og Shefki Kuqi gengu til liðs við Fulham í gær.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.