Fotbolti.net
01.09.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Simun Samuelsen til Sogndal (Staðfest)

Simun Samuelsen til Sogndal (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Sogndal úr norsku fyrstu deildinni hefur fengið Símun Samuelsen að láni frá Keflavík þar til í nóvember og hefur félagið í kjölfarið forkaupsrétt á leikmanninum.
Við greindum frá því í gær að Símun væri á leið til Sogndal og gengið var frá lausum endum áður en að félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.

Simun sem kom til Keflavíkinga árið 2005 hefur leikið vel í sumar en hann hefur skorað sex mörk í þrettán leikjum í Landsbankadeildinni.

Keflvíkingar seldu einnig Baldur Sigurðsson til Noregs í gær en hann fór til Bryne sem er einnig í fyrstu deildinni þar í landi.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.