Fotbolti.net
01.09.07 - 00:54
Sindri Þór Þorgeirsson

Faye og Beye til Newcastle (Staðfest)

Sam Allardyce heldur áfram að breyta liði Newcastle

Sam Allardyce heldur áfram að breyta liði Newcastle

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle fengu í kvöld til sín leikmennina Habib Beye og Abdoulaye Faye rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaði á Englandi á miðnætti.
Beye er 29 ára varnarmaður sem getur spilað bæði sem hægri bakvörðu og miðvörður. Hann hefur leikið 10 landsleiki með Senegal og spilaði meðal annars í heimsmeistarakeppninni árið 2002. Beye skrifaði undir þriggja ára samning við félagið nú í kvöld.

Faye er 29 ára og hefur leikið sex landsleiki fyrir Senegal. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að hann leikur undir stjórn Allardyce því árið 2005 gekk hann til liðs við Bolton sem Sam Allardyce þjálfaði á þeim tíma.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.