Fotbolti.net
01.09.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson

Naismith til Rangers (Staðfest)

Walter Smith er loksins búinn að næla í Naismith

Walter Smith er loksins búinn að næla í Naismith

Canon

Mynd: Getty Images

Rangers fengu í gærkvöldi til sín skoska landsliðsmanninn Steven Naismith frá skoska liðinu Kilmarnock.
Rangers eru búnir að vera á eftir Naismith undanfarna daga og allt leit út fyrir að hann þyrfti að sætta sig við að vera áfram hjá Kilmarnock eftir að leikmannaglugganum yrði lokað.

En Rangers sýndu skjót handbrögð og nældu sér í leikmanninn rétt áður en glugganum var lokað og skoska knattspyrnusambandið staðfesti síðan á miðnætti að kaupin hefðu gengið í gegn.

Naismith er tvítugur og hefur leikið einn leik með skoska A-landsliðinu. Hann skoraði í sínum fyrsta leik með U-21 árs landsliði Skota gegn Íslandi í mars 2006 og síðan þá hefur leiðin legið uppá við.

Hann fór á tveggja daga raynslu hjá Arsenal en Kilmarnock höfnuðu tilboði í hann. Hann lék 97 leiki fyrir aðallið Kilmarnock og skoraði í þeim 29 mörk.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.