01.09.07 - 10:35
Hafliði Breiðfjörð
Liverpool fær Damien Plessi frá Lyon (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool keypti einn leikmann á lokadegi félagaskipta í helstu deildum Evrópu í gær þegar franski leikmaðurinn Damien Plessi gekk í raðir þeirra frá Lyon.
Plessi sem er 19 ára gamall djúpur miðjumaður mun spila með varaliði Liverpool til að byrja með.
,,Hann er góður leikmaður, stór og sterkur, og við erum vissir um að hann muni gera vel fyrir okkur," sagði Rafael Benítez stjóri Liverpool í gær.
,,Hann er bara ungur drengur með mikinnn tíma til að vinna í leik sínum, en það ræðst á hvernig honum gengur að bæta sig hversu lengi hann verður að vinna sér sæti í aðalliðinu."

Heimild: Opinber vefsíða Liverpool