Fotbolti.net
01.09.09 - 06:00
Jóhann Óli Eiðsson

Michael Turner til Sunderland (Staðfest)

Michael Turner (t.h.) hefur leikið sinn seinasta leik fyrir Hull City

Michael Turner (t.h.) hefur leikið sinn seinasta leik fyrir Hull City

Canon

Mynd: Getty Images

Michael Turner er genginn til liðs við Sunderland frá Hull City. Kaupverð er talið vera um 12 milljónir punda en það fæst þó ekki staðfest. Turner skrifaði undir fjögurra ára samning við Svörtu Kettina.
Þar með líkur sögusögnum um framtíð Turner (í bili) en hann hafði verið þrálátlega orðaður við Liverpool, Manchester United, Tottenham, Fulham og Everton.

Á tímabili sagði Phil Brown, knattspyrnustjóri Hull, að tilboðin væru að nálgast það að verða fáránlega há og á endanum hefur hann greinilega fengið eitt sem var of hátt til að segja nei við því og því varð hann sjöundi leikmaðurinn sem Steve Bruce fær til liðs við sig.

,,Einn af mikilvægustu þáttunum sem fékk mig til að skipta um lið, er Steve Bruce. Hann hefur átt frábæran feril og ég mjög góður knattspyrnustjóri,\" sagði hinn 25 ára gamli Michael Turner.

,,Michael er einn af bestu varnarmönnum deildarinnar og ég hef fylgst með honum í þónokkurn tíma,\" sagði Steve Bruce. ,,Ég hef verið að keppast við að styrkja vörnina og Michael smellpassar inn í hana.\"

,,Hann hefur þroskast helling sem leikmaður hjá Hull og ég vonast til þess að hann haldi áfram að þroskast hjá Sunderland.\"


Turner hóf feril sinn hjá Charlton áður en hann fór til Brentford. Þaðan var hann keyptur til Hull fyrir 350,000 pund og því ljóst að Hull græða helling á sölunni fjárhagslega séð. Hann er hins vegar mikill missir fyrir liðið en á seinasta tímabili var hann einn tveggja leikmanna sem lék hverja einustu mínútu í hverjum einasta deildarleik tímabilsins.

Heimild: BBC Sports | Heimasíða Hull City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.