Fotbolti.net
01.09.09 - 06:00
Jóhann Óli Eiðsson

Austurrískur risi á leið til Úlfanna (Staðfest)

Maierhofer kemur inn á fyrir Claudio Pizzaro. Takið sérstaklega eftir hæðarmuninum.

Maierhofer kemur inn á fyrir Claudio Pizzaro. Takið sérstaklega eftir hæðarmuninum.

Canon

Mynd: Getty Images

Stefan Maierhofer, 27 ára gamall Austurrískur framherji, hefur gert þriggja ára samning við nýliðana í Wolverhampton Wanderers en hann kemur frá Rapid Vienna í heimalandinu. Kaupverð fæst ekki uppgefið.
Maierhofer, sem er ekki af minni gerðinni en hann er 202cm á hæð, skoraði 23 mörk í 37 leikjum fyrir lið sitt á seinasta tímabili og vann sér inn sæti í Austurríska landsliðinu en hann á að baki 6 landsleiki fyrir þjóð sína.

Maierhofer, sem er lærður kokkur og lék eitt sinn fyrir Bayern Munchen, var annar leikmaðurinn sem Mick McCarthy keypti í gær en áður hafði hann fengið Segundo Castillo á láni frá Red Star Belgrad.

,,Við erum hæstánægðir með að fá Maierhofer inn sem níunda nýja leikmann sumarsins,\" sagði Jez Moxey, einn af hæstráðendum félagsins.

,,Hann er leikmaður sem hefur verið að skora mikið af mörkum fyrir sitt gamla félag, meðal annars eitt þeirra marka sem kom Rapid Vienna í Evrópudeildina.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.