Fotbolti.net
01.09.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Fabio Grosso til Juventus (Staðfest)

Þessi vítaspyrna reyndist Grosso minnisstæð

Þessi vítaspyrna reyndist Grosso minnisstæð

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið Juventus hefur fengið til sín ítalska bakvörðinn Fabio Grosso frá Lyon í Frakklandi.
Grosso, sem er 31 árs gamall kemur til Juventus fyrir 2 milljónir evra, en ásamt því skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.

Hann hefur áður spilað fyrir Palermo og Inter Milan á Ítalíu, en nú snýr hann baka til heimalandsins, en hann gerði þó garðinn allra frægastann þegar hann skoraði úr síðustu spyrnu Ítala gegn Frökkum í úrslitalek HM 2006.

Hann kemur því inn í sterkt Juventus lið, sem er til alls líklegt á þessu tímabili eftir að hafa styrkt hópinn til mikils, en þeir fengu meðal annars Diego frá Werder Bremen, og reynsluboltann Fabio Cannavaro frá Real Madrid.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.