Fotbolti.net
01.09.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Tal Ben Haim til Portsmouth (Staðfest)

Tal Ben Haim til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur gengið frá kaupum á Tal Ben Haim varnarmanni Manchester City en þessi ísraelski landsliðsmaður gerði fjögurra ára samning við félagið.
Ben Haim sem er 27 ára gamall hefur einnig spilað fyrir Bolton og Chelsea. Hann spilaði síðast fyrir City í desember áður en hann fór á láni til Sunderland.

Hann gæti spilað sinn fyrsta leik með Portsmouth 12. september gegn Bolton sem er félagið sem fékk hann fyst til Englands árið 2004.

Hann gekk svo til liðs við Chelsea árið 2007 og þaðan til City ári síðar.

Porstmouht hefur tapað fyrstu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni, síðast gegn City á sunnudag, og hefur selt varnarmanninn Sylvain Distin til Everton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.