01.09.09 - 08:01
Hafliði BreiðfjörðÞórður Már Sigfússon
Bjarni Þór Viðarsson til KSV Roselare (Staðfest)

Bjarni Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson er genginn í raðir belgíska félagsins KVS Roselare en frá þessu var greint á vef félagsins í gær. Ekki kemur fram hvort hann sé lánaður frá félagi sínu, Twente í Hollandi, eða skipti alfarið.
,,Roeselare hafði samband í sumar en ekkert varð úr þessu þá. En þetta gerðist mjög fljótt og ég hlakka sérstaklega til þess að mæta Cercle Brugge,” sagði Bjarni Þór en Arnar Þór bróðir hans leikur með Brugge.
Þá er einnig rætt við Peter Ressel umboðsmann Bjarna sem spilaði með liðum á borð við Anderlecht, PSV Eindhoven og Feyenoord á sínum tíma.
,,Bjarni átti litla sem enga möguleika á að láta að sér kveða hjá FC Twente vegna þess hversu margir góðir og reyndir miðjumenn eru þar,\" sagði hann.
,,Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa með hæfileika hans og hann passar vel inní okkar unga lið. Hann er einungis 21 árs og vill bæta sig. Hæfileikarnir eru til staðar og ef hann leikur reglulega mun hann vafalaust verða betri leikmaður,” sagði Peter Ressel.

Heimild: Vefur KSV