01.09.09 - 08:07
Hafliði Breiðfjörð
Diego Arismendi til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Úrúgvæinn Diego Arismendi er genginn til liðs við Stoke City en félagið kaupir hann á 2,6 milljónir punda frá Club Nacional í heimalandi hans.
Arismendi er 21 árs gamall en endanlegt kaupverð gæti farið upp í 4,8 milljónir punda verði ákveðnum skilyrðum mætt.
,,Það er draumur að rætast að spila í úrvalsdeildinni,\" sagði hann á vef Stoke City.
Hann hefur spilað tvo leiki fyrir landslið Úrúgvæ og lék sinn fyrsta leik í vináttuleik gegn Noregi í maí 2008.
,,Þetta er í fyrsta sinn sem félagið hefur keypt leikmann beint frá Suður Ameríku,\" sagði Tony Scholes framkvæmdastjóri félagsins.

Heimild: BBC