01.09.09 - 09:29
Hafliði Breiðfjörð
Danny Collins til Stoke City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City átti fyrstu staðfestu félagaskipti dagsins í enska boltanum en glugginn lokar klukkan 17:00 í dag. Þau tíðindi eru þau að Danny Collins hefur verið keyptur frá Sunderland á 2,75 milljónir punda en Stoke staðfesti þetta á vef sínum og sagðist þar með hafa eytt 18,5 milljónum í sumar.
Collins sem er 29 ára gamall varnarmaður gekk frá samningi við Stoke City í morgun eftir að hafa gengist undir læknisskoðun og komist að samkomulagi um kaup og kjör.
Þessi kaup koma degi eftir að Stoke staðfesti kaup á Úrúgvæanum Diego Arismendi sem var fjórði leikmaðurinn sem félagið fær á síðustu dögum. Hinir voru Robert Huth og Tuncay frá Middlesbrough.
,,Danny hefur verið leikmaður ársins hjá Sunderland undanfarnar tvær leiktíðir sem sýnir hversu mikið hann hefur gert hjá því félagi. Hann getur spilað sem vinstri bakvörður eða miðvöruðr sem gefur okkur meiri breidd í öftustu varnarlínu,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.

Heimild: Vefur Stoke