01.09.09 - 11:28
Jóhann Óli Eiðsson
Kerlon genginn til liðs við Ajax á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Kerlon hefur gengið til liðs við Ajax á láni út tímabilið en hann kemur frá Inter Milan.
Kerlon, 21 árs, hefur oft verið líkt við sel en hann á það til að lyfta boltanum upp á höfuð sér og hlaupa með hann þar og eina ráð andstæðingana er yfirleitt að sparka hann niður.
Hann gekk til liðs við Inter Milan frá Chievo nú í sumar en hefur enn ekki náð að leika leik fyrir liðið. Hann fær því að fara til Ajax til að fá meiri reynslu.
Talið er að Ajax þurfi ekki að borga krónu fyrir að hafa afnot af Kerlon út tímabilið þannig að þeir tapa engu á kaupunum en Kerlon hefur átt við þrálát meiðsli að stríða og telja margir að það sé ástæðan fyrir því að hann hafi ekki orðið betri en hann er núna.
Fyrir þá sem hafa ekki séð hina mögnuðu selatakta, þá geta þeir klikkað hér.

Heimild: Sky Sports