Fotbolti.net
01.09.09 - 14:37
Hafliði Breiðfjörð

Jerome Rothen til Rangers (Staðfest)

Rothen í leik með Frökkum.

Rothen í leik með Frökkum.

Canon

Mynd: Getty Images

Rangers hefur fengið Jerome Rothen leikmann Paris St. Germain á láni út tímabilið. Rothen sem er 31 árs gamall kantmaður er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Rangers í rúmlega ár.
Walter Smith knattpsyrnustjóri félagsins hafði sagt að vinstri hluti miðjunnar væri vandamál og Rothen sem hefur leikið 13 landsleiki fyrir Frakkland er fenginn til að laga það.

Rothen er sagður snillingur í föstum leikatriðum en hann var stjarna Monaco sem komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2004 og var í kjölfarið keyptur til PSG.

Hann var í leikmannahópi Frakka sem á Evrópumótunum 2004 og 2008.

Rangers hefur losað sig við 10 leikmenn í sumar til að lækka kostnað og svo virtist sem enginn kæmi inn. Nú hefur Rothen hinsvegar komið eftir að ekkert varð úr því að hann færi til Schalke sem stóð til fyrr í sumar.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.