01.09.09 - 15:30
Hörður Snævar Jónsson
James Collins til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
James Collins er genginn í raðir Aston Villa frá West Ham og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Villa.
Hann er 25 ára gamall landsliðsmaður Wales og Villa vill fá hann til að leysa stöðu Martin Laursen sem hætti fyrr á árinu vegna meiðsla.
Talið er að kaupverðið sé 5 milljónir punda fyrir þennan miðvörð.
Líklegt er að Richard Dunne leikmaður Manchester City gangi einnig í raðir Aston Villa í dag.
,,Þetta hafa verið erfiðir 24 tímar síðan ég kom hingað en ég er ánægður að þetta er allt gegnið í gegn,\" sagði Collins.
,,Ég kom í gær og ræddi við stjórann og hef verið að skoða mig um. Þetta er frábært hérna og ég get ekki beðið eftir því að byrja.\"

Heimild: Heimasíða Aston Villa