Fotbolti.net
01.09.09 - 15:56
Hörður Snævar Jónsson

Johnny Heitinga til Everton (Staðfest)

Heitinga á Laugardalsvelli í sumar.

Heitinga á Laugardalsvelli í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Johnny Heitinga hefur gengið í raðir Everton frá Atletico Madrid og er kaupverðið 5 millónir punda.
Þessi hollenski varnarmaður skrifaði undir fimm ára samning við félagið úr Bítlaborginni sem hefur þar með fundið eftirmann Joleon Lescott.

Heitinga er reynslumikill maður en hefur spilað tæplega 50 landsleiki fyrir Holland en hann er nú fyrirliði liðsins.

,,Við erum ánægðir með að hafa gengið frá því að John sé kominn til Everton. Hann hefur renyslu frá tíma sínum hjá Ajax og Atletico Madrid og ég veit að David Moyes er spenntur fyrir því að hann byrji,\" sagði Robert Elstone stjórnarformaður Everton.

Heitinga er uppalin hjá Ajax en hann gekk í raðir Atletico Madrid frá hollenska félaginu

Heimild: Heimasíða Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.