Fotbolti.net
01.09.09 - 15:49
Hafliði Breiðfjörð

Ivan Klasnic til Bolton (Staðfest)

Ivan Klasnic í leik með Werder Bremen.

Ivan Klasnic í leik með Werder Bremen.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur nú gengið frá samningum við króatíska framherjann Ivan Klasnic sem kemur til félagsins á láni út tímabilið frá Nantes í Frakklandi.
Klasnic lék með St Pauli og Werder Bremen í Þýskalandi áður en hann fór til Nantes í frönsku 2. deildina. Hann skoraði 10 mörk í 33 leikjum.

,,Ivan er leikmaður sem við höfum verið lengi á eftir,\" sagði Gary Megson stjóri Bolton við vef félagsins.

,,Markaskorunar tölfræðin hans er góð og hann hefur frábæra reynslu alþjóðlega og í sterkum deildum í Evrópu.\"

Klasnic sló í gegn hjá St Pauli þar sem hann skoraði 26 mörk í 95 leikjum áður en hann fór til Werder Bremen þar sem hann var í sjö leiktíðir. Hann fæddist í Hamburg en vann með Bremen Bundesliguna árið 2004 og skoraði 5 mörk í Meistaradeildinni árið eftir.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.