Fotbolti.net
01.09.09 - 16:23
Hafliði Breiðfjörð

Niko Kranjcar til Tottenham (Staðfest)

Niko Kranjcar til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham staðfesti rétt í þessu á vef sínum að félagið hafi komist að samkomulagi við Portsmouth um kaup á Niko Kranjcar og að leikmaðurinn hafi þegar komist í gegnum læknisskoðun og samið við félagið.
Kranjcar hóf feril sinn hjá Dinamo Zagreb þar sem hann lék sinn fyrsta leik 16 ára gamall og var fyrirliði liðsins sem vann deildina og ofurbikarinn árið 2003.

Þessi 25 ára gamli leikmaður fór þaðan til Hajduk Split í janúar 2005 og vann deildina þar á fyrsta tímabili.

Svo gekk hann til liðs við Portsmouth sumarið 2008 og spilaði í heildina 100 leiki og skoraði 12 mörk í öllum keppnum.

Heimild: Vefur Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.