Fotbolti.net
01.09.09 - 16:25
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Claudio Raneri tekur við Roma (Staðfest)

Claudio Raneri tekur við Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reuters fréttastofan greindi frá því nú á fimmta tímanum að Claudio Ranieri hafi verið ráðinn knattspyrnustjóri Roma.
Þar kemur fram að Ranieri sem hætti hjá Juventus síðasta vor muni geri tveggja ára samning við Roma.

Lögmaður hans, Matia Grassani, staðfesti þetta við Reuters og sagði: ,,Það er komið samkomulag. Á morgun skrifar hann undir tveggja ára samning.\"

Fyrr í morgun hafði Luciano Spalletti sagt skilið við félagið í kjölfar þess að liðið hafði tapað fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.