01.09.09 - 17:08
Hafliði Breiðfjörð
Peter Lovenkrands til Newcastle að nýju (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur gengið frá samningum við danska kantmanninn Peter Lovenkrands sem gerir þriggja ára samning við félagið.
Lovenkrands sem er 29 ára gamall hætti hjá Newcastle í lok síðustu leiktíðar eftir að hafa skorað 3 mörk í 12 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann hafði komið í janúar.
Hann varð svo félagslaus í kjölfarið og hafnaði tveimur tilboðum frá Newcastle en þriðja tilboðið virðist hafa klárað málið svo hann verður aftur leikmaður Newcastle.
Málið kláraðist svo rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans fyrir um klukkustund síðan.

Heimild: Sky