Fotbolti.net
01.09.09 - 17:13
Hafliði Breiðfjörð

Teemu Tainio til Birmingham (Staðfest)

Teemu Tainio.

Teemu Tainio.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fengið Teemu Tainio miðjumann Sunderland á láni út tíambilið.
Tainio sem er 29 ára gamall finnskur landsliðsmaður sem á 46 landsleiki að baki hafði komið til Sunderland frá Tottenham í júlí 2008.

Hann lék 23 leiki fyrir Tottenham og skoraði opnunarmarkið í 4-1 sigri á Norwich í Carling Cup á dögunm.

Hann gerði samning við Tottenham þegar hann fór frá Auxerre í Frakklandi í júlí árið 2005 og spilaði 83 leiki fyrir Lundúnarliðið.

Hann hafði hafið feril sinn með TP-47 í heimalandi sínu og svo með FC Haka áður en hann fór til Auxerre árið 1997.

Þar lék hann 150 leiki og átti þátt í því að liðið komst í Meistaradeildina 2002 og vann franska bikarinn 2003.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.