01.09.09 - 17:35
Gunnar Gunnarsson
David Nugent á láni til Burnley frá Portsmouth (Staðfest)

David Nugent varð í dag nýr liðsmaður Burnley.

Mynd: Getty Images

Burnley hefur styrkt sig sóknarlega en þeir hafa fengið David Nugent að láni frá Portsmouth. Um er að ræða sex mánaða samning og eiga nýliðarnir möguleika á að kaupa leikmanninn að þeim tíma liðnum.
Hinn 25 ára gamli David Nugent sem kom til Portsmouth frá Preston í júlímánuði 2007 fyrir um 6 milljónir punda hefur ekki náð að láta ljós sitt skína hjá félaginu.
Hann lenti meðal annars í útistöðu við samherja sinn Marc Wilson í æfingaferð liðsins í Portúgal í byrjun ágúst og voru báðir leikmennirnir sendir heim og sektaðir um tveggja vikna laun.
Það voru mörg lið sem höfðu áhuga á að fá Nugent til sín áður en leikmannamarkaðurinn lokaði í dag þar á meðal Hull City en leikmaðurinn neitaði að ganga til liðs við þá.
Framherjinn, David Nugent mun því verða samherji Jóhannes Karls Guðjónssonar hjá Burnley.

Heimild: Soccernet