Fotbolti.net
01.09.10 - 12:02
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

Marco Borriello í Roma (Staðfest)

Marco Borriello ásamt Ronaldinho - Þeir verða mótherjar á þessu tímabili.

Marco Borriello ásamt Ronaldinho - Þeir verða mótherjar á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Marco Borriello er haldinn til AS Roma á Ítalíu á eins árs láni frá AC Milan og tókst þeim síðarnefndu því ætlunarverk sitt, að búa til pláss fyrir þá Zlatan Ibrahimovic og Robinho í framlínunni.
Fréttir hermdu að Borriello væri á leið til Juventus en ekkert varð þó úr því vegna þess að leikmaðurinn vildi ekki fara á láni, heldur skipta endanlega um félag. AC Milan virðist þó hafa tekist að fá þennan öfluga framherja til að skipta um skoðun og mun hann því spila í höfuðborginni á þessu tímabili.

Yfirlýsing á vefsíðu AC Milan sagði: „AC Milan tilkynnir hér með að félagið hefur lánað Marco Borriello til Roma út tímabilið 2010-11.“

Roma getur síðan tryggt sér leikmanninn endanlega ef hann stendur sig vel á Stadio Olimpico.

Heimild: Setanta

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.