Fotbolti.net
01.09.10 - 15:11
Magnús Már Einarsson

Funicello farinn frá Þór í finnsku úrvalsdeildina (Staðfest)

Funicello í leik gegn ÍA á dögunum.

Funicello í leik gegn ÍA á dögunum.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Giuseppe \"Joe\" Funicello er farinn frá Þór en hann hefur gert eins og hálfs árs samning við finnska úrvalsdeildarliðið IFK Mariehamn.
Funicello verður því ekki með Þór í síðustu þremur umferðunum í fyrstu deildinni en liðið á í harðri baráttu um sæti í Pepsi-deildinni og mætir nágrönnunum í KA í mikilvægum leik annað kvöld.

Þessi 23 ára gamli ítalski vinstri bakvörður kom til Þórs fyrir tímabilið en hann hefur leikið sautján leiki í fyrstu deildinni í sumar.

,,Þetta er góður fótboltamaður og sérstaklega góður drengur,\" sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Fótbolta.net í dag.

,,Auðvitað söknum við hans en samgleðjumst honum að sama skapi. Þetta er það sem hann stefndi á að koma hingað og nota það sem stökkpall til að komast lengra.\"

,,Það var samið um það í upphafi og að sjálfsögðu er staðið við það. Við förum ekki fram á neitt, hann fær bara að fara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.