Hvert fer Salah? - Wharton vill Meistaradeild - Ederson til Liverpool eða Barca - Arsenal og Real berjast um Yildiz
   mán 01. september 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lék með HK og er nú kominn til Norrköping (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski markvörðurinn Christoffer Petersen er genginn til liðs við Norrköping sem leikur í efstu deild í Svíþjóð.

Petersen lék með HK síðasta sumar en hann kom við sögu í 11 leikjum í Bestu deildinni.

Hann kom til Íslands frá Kolding í Danmörku en hann fór aftur þangað síðasta vetur en er nú kominn til Svíþjóðar.

Magni Fannberg, íþróttastjóri Norrköping, sagði í tilkynningu frá félaginu að Petersen komi til með að veita markvöðrum liðsins góða samkeppni. Þá hafa markmenn liðsins átt við einhver meiðsli að stríða á tímabilinu.


Athugasemdir
banner