Fotbolti.net
01.10.07 - 18:07
Hafliði Breiðfjörð

Dragi Pavlov tekur við Álftanesi (Staðfest)

Dragi Pavlov.

Dragi Pavlov.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Meistaraflokksráð karla í knattspyrnu hjá Álftanesi hefur gengið frá ráðningu á Dragi Pavlov sem þjálfara meistaraflokks karla og 2. flokks karla næstu 3 árin. Skrifað var undir samning þessa efnis í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi nú klukkan 17:15 í dag.
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni því þetta er mjög ungt lið sem ég vona að ég geti unnið eitthvað með," sagði Dragi í samtali við Fótbolta.net í dag. ,,Við höfum langan tíma til undirbúnings og við verðum tilbúnir þegar mótið hefst."

,,Ég á enn eftir að hitta hópinn og sjá hvort það þurfi að styrkja liðið frekar en við sjáum til með það síðar. Ég sá liðið ekkert í sumar því ég vann á Spáni þá en mun hitta hópinn á æfingu í kvöld."


Hann er fæddur árið 1963 og uppalinn í Makedóníu. Hann hóf atvinnumannaferil aðeins 17 ára gamall er hann gerði atvinnumannasamning við Vardar frá Skopje. Þá varð hann yngsti leikmaður sem liðið hafði gert samning við.

Hann lék með liðinu í 3 ár í efstu deild fyrrum Júgóslavíu sem þá var ein sterkasta deild í Evrópu. Þaðan fór hann til Radnicki frá Pirot í 2. deild og sneri svo aftur til Vardar þar sem hann lék í eitt ár. Á árunum 1989-1992 lék hann í Frakklandi, fyrst eitt ár með Valencie og síðan í þrjú ár með Sedan en bæði þessi lið voru þá í efstu deild.

Eftir fjögur ár í Frakklandi sneri hann svo aftur heim til Júgóslavíu og gekk aftur til liðs við Radnicki frá Pirot þar sem hann var til 1998. Fyrst sem leikmaður en síðustu tvö árin sem þjálfari meistaraflokks karla, þá aðeins 34 ára og einn yngsti þjálfarinn í knattspyrnusögu fyrrum Júgóslavíu. Á þeim árum stundaði hann einnig nám í knattspyrnufræðum við Nis-háskólann í Belgrad og lauk þaðan prófi með bestu einkunn.

Dragi kom fyrst til Íslands vorið 1998 og tók þá við þjálfun hjá Neista á Djúpavogi en flutti sig um haustið yfir til Egilsstaða þar sem hann var ráðinn yfirþjálfari yngri flokka Hattar. Þar starfaði hann í þjú ár, eða til ársins 2001. Þá flutti hann suður og tók við stöðu yfirþjálfara yngri flokka hjá Stjörnunni í Garðabæ en þjálfaði auk þess annan, fimmta, sjötta og sjöunda flokk hjá félaginu.

Eftir þrjú ár hjá Stjörnunni var Dragi ráðin sem einn af fimm þjálfurum hjá Knattspyrnu Akademíu Íslands en þar starfaði hann ásamt þeim Zeljko Sankovic, Þorláki Árnasyni, Pavol Kretovic og Elísabetu Gunnarsdóttur undir stjórn Arnórs Guðjohnsen, skólastjóra.

Dragi var þjálfari hjá meistaraflokki kvenna FH tímabilið 2006 en síðastliðið tímabil þjálfaði hann lið Son Olivia frá Mallorca sem leikur í 3. deild á Spáni.

Rekstur meistaraflokks Álftanes hófst á síðasta ári er liðið tók þátt í þriðju deildinni. Liðið endaði í fjórða sæti C-riðils með 15 stig úr jafnmörgum leikjum.
Frá undirskriftinni í dag.

Frá undirskriftinni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.