01.10.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Prince Rajcomar semur við félag í Ungverjalandi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Prince Rajcomar hefur gert fjögurra ára samning við ungverska félagið Zalaegerszegi TE.
Þessi hollenski framherji yfirgaf herbúðir KR á dögunum en áður lék hann í tvö ár með Breiðablik.
Áður en hann kom til Íslands þá lék Prince með Fortuna Sittard, FC Utrecht og Den Bosch í heimalandi sínu auk þess sem hann var í yngri landsliðum Hollendinga.
Í sumar fór hann til ensku félaganna MK Dons og Carlisle á reynslu en þau leika í þriðju efstu deild þar í landi.
Zalaegerszegi TE er sem stendur í 11.sæti í ungversku úrvalsdeildinni af alls sextán liðum en átta umferðir eru búnar í deildinni þar í landi.

Heimild: KR Reykjavík