01.11.06 - 12:16
Hafliði Breiðfjörð
Matthías Guðmundsson til FH (Staðfest)

Matthías skrifar undir samninginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías skrifar undir samninginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Matthías Guðmundsson er genginn í raðir FH frá Val en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið á fréttamannafundi í Kaplakrika nú í hádeginu.
Matthías rifti samningi sínum við Valsmenn í haust og ákvað að reyna fyrir sér erlendis en sagði einnig þá að ekki væri ljóst hvort hann yrði með Val ef hann yrði hér á landi.
Hann fór til reynslu hjá AGF í Danmörku og Álasund í Noregi en fékk ekki samningsboð frá félögunum. Því ákvað hann að leita sér að félagi hér á landi og hefur nú valið FH.
Nokkur félög voru á höttunum á eftir Matthíasi og meðal þeirra vildu Valsmenn semja við hann á ný. Hann hefur tilkynnt þeim liðum sem vildu fá sig að hann hafi ákveðið að ganga til liðs við Íslandsmeistara FH.
Matthías er 26 ára gamall framherji sem getur spilað á kanti. Hann hefur allan sinn feril spilað með Val. Hann á að baki 83 leiki með Val í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim 18 mörk.
Hann var valinn í íslenska landsliðið sem mætti Spánverjum í ágúst og kom inná sem varamaður seint í leiknum. Þetta var hans fyrsti landsleikur fyrir A landslið Íslands en áður hafði hann leikið með U21 og U17 ára landsliðunum.
Matthías er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir FH frá því Íslandsmótinu lauk, áður höfðu tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gengið til liðs við félagið.
Þegar er ljóst að André Schei Lindbæk, Peter Matzen og Baldur Bett fara frá FH, sá síðastnefndi fór í Val. Óvíst er með Atla Viðar Björnsson sem er samningslaus en FH hefur boðið honum nýjan samning.
Þá munu nokkrir leikmenn snúa aftur í liðið eftir að hafa misst af öllu tímabilinu eða stórum hluta vegna meiðsla. Þetta eru leikmenn eins og Auðun Helgason, Sverrir Garðarsson, Davíð Þór Viðarsson, Freyr Bjarnason og Atli Viðar ef verður áfram hjá FH.