01.11.07 - 11:31
Hafliði BreiðfjörðHörður Snævar Jónsson
Pétur Pétursson verður aðstoðarmaður Óla Jó (Staðfest)

Pétur Pétursson.

Mynd: Hilmar Þór

Pétur Pétursson.

Mynd: Hilmar Þór
Pétur Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar með íslenska landsliðið og skrifaði undir tveggja ára samning þess efnis nú í morgun. Þetta staðfesti Pétur í samtali við Fótbolta.net í dag en hann mun einnig halda áfram starfi sínu sem þjálfari 2. flokks Breiðabliks.
Pétur sem er 48 ára er fyrrum landsliðsmaður Íslands. Hann hefur undanfarin tvö ár þjálfað 2. flokk karla hjá Breiðablik og er að hefja þriðja árið með þann flokk þar sem Brynjar Harðarsson fyrrum leikmaður KS er aðstoðarmaður hans.
Ólafur Jóhannesson var á mánudag tilkynntur sem nýr landsliðsþjálfari Íslands til tveggja ára en hann tekur við af Eyjólfi Sverrissyni sem hafði stýrt liðinu í tvö ár. Fyrsta verkefni Ólafs með liðið er 21. nóvember næstkomandi gegn Danmörku á Parken en ljóst var að hans fyrsta verk yrði að ráða sér aðstoðarmann sér við hlið. Nú hefur verið gengið frá því að Pétur verður hans aðstoðarmaður.
Pétur Pétursson lék með íslenska landsliðinu á árunum 1978-1990. Á þeim tíma lék hann 41 landsleik fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 11 mörk en í fjórum þessara leikja bar hann fyrirliðabandið.
Hann lék með ÍA og KR hér á landi en auk þess lék hann með Feyenoord í Hollandi, Anderlecht og Antwerpen í Belgíu og Hercules í spænsku deildinni.
Þjálfaraferill hans hófs árið 1993 er hann stýrði Tindastól í næst efstu deild hér á landi en árið eftir tók hann við Keflavík í efstu deild. Árið 1995 stýrði hann Víkingum í næst efstu deild og tók sé svo langt hlé frá meistaraflokksþjálfun. Næst þjálfaði hann KR árið 2000 og á sínu fyrsta ári með liðið gerði hann KR að Íslandsmeisturum en hætti svo á miðju tímabili 2001.