Fotbolti.net
01.12.06 - 12:10
Hörður Snævar Jónsson

Larsson til Manchester United í janúar (Staðfest)

Larsson.

Larsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United mun fá Svíann, Henrik Larsson á láni janúar frá þessu var greint á fréttamannafundi nú í hádeiginu. Larsson sem er 35 ára gamall mun koma til Manchester United í janúar og fara aftur til Helsingborg í mars þegar sænska deildin byrjar.
United á í framherjavandræðum, aðeins Louis Saha og Wayne Rooney eru heilir, Ole Gunnar Solskjær er meiddur, Alan Smith vantar leikæfingu og Guiseppe Rossi er á láni hjá Newcastle.

Larsson lék á seinasta tímabili með Barcelona og átti stóran þátt í því að liðið lagði Arsenal af velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Heimild: BBC | Heimasíða Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.