Fotbolti.net
02.01.07 - 18:05
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Alnwick til Tottenham í skiptum fyrir Fulop (Staðfest)

Alnwick er kominn á White Hart Lane

Alnwick er kominn á White Hart Lane

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa gengið frá kaupunum á markverðinum Ben Alnwick frá Sunderland í skiptum fyrir Martin Fulop sem hefur verið á láni á Leikvangi Ljósanna síðan í nóvember.
Spurs hafa borgað 900 þúsund pund fyrir Alnwick, sem gæti þó hækkað upp í 1,3 milljónir eftir leikjafjölda hans fyrir félagið. Sunderland þurfti hinsvegar að borga 500 þúsund pund fyrir Fulop og samkvæmt útreikningum Fótbolti.net þarf Tottenham semsagt að borga 400 á milli sem gæti hækkað upp í 800 þúsund.

Alnwick, sem er 20 ára gamall, hefur spilað fyrir u-17, u-18 og u-19 ára landsliðs England auk þess sem hann var kallaður í u-21 árs landsliðið Englands í ágúst.

,,Við erum ánægðir með að hafa fengið annan ungan og hæfileikaríkann leikmann til klúbbsins. Ben er kannski aðeins 20 ára en hann hefur reynslu með landsliði og í Úrvalsdeildinni. Ben sýndi mikinn áhuga á að koma til okkar og ég veit að hann er spenntur að vera hluti af framtíðinni hjá okkur," sagði Damien Comolli, íþróttafulltrúi Tottenham.

Fulop skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Sunderland: ,,Marton er ungur og hungraður leikmaður sem vill greinilega gera vel fyrir klúbbinn og vonandi verður hann toppleikmaður hjá Sunderland í framtíðinni," sagði knattspyrnustjórinn Roy Keane á heimasíðu Sunderland í dag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.