Fotbolti.net
02.01.09 - 07:57
Davíð Örn Atlason

Timo Gebhart til Stuttgart (Staðfest)

Stuttgart hafa fengið liðsstyrk.

Stuttgart hafa fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Timo Gebhart er genginn í raðir VFB Stuttgart frá 1860 Munchen. Stuttgart leika í efstu deild í þýskalandi, en 1860 Munchen leika í næst efstu deild.
Gebhart sem er 19 ára gamall miðjumaður er talinn einn efnilegasti leikmaður Þýskalands. Hann skriaði undir fjögurra ára samning við félagið eftir að hafa staðist læknisskoðun í gær.

Kaupverðið á Gebhart er talið vera um þrjár milljónir evra, sem eru 2,85 milljónir punda.

,,Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í Bundesligunni,\" sagði Gebhart við opinbera heimasíðu félagsins.

,,Þess vegna ákvað ég að ganga í raðir VFB og einnig af því að þeir eru þekktir fyrir að gefa ungum strákum tækifæri.\"

,,Ég vil nota krafta mína til þess að hjálpa VFB og ég ætla mér að verða byrjunarliðsmaður.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.