02.01.09 - 13:26
Hafliði Breiðfjörð
Luke Chadwick til MK Dons (Staðfest)

Chadwick fagnar marki með Norwich.

Mynd: Getty Images

Chadwick fagnar marki með Norwich.

Mynd: Getty Images
ML Dons hefur gengið frá kaupum á kantmanninum Luke Chadwick sem kemur án greiðslu frá Norwich City.
Chadwick sem er 28 ára gamall gerði tveggja og hálfs árs samning við 1. deildarfélagið eftir að hafa verið á láni þar fyrr á tímabilinu.
Hann er fyrrverandi leikmaður Manchester United sem skoraði þrjú mörk í átta leikjum fyrir MK Dons í október áður en hann lenti í hnémeiðslum og sneri því aftur til Norwich. Hann varð svo formlega leikmaður MK Dons í gær.
,,Ég get ekki beðið eftir að byrja að nýju. Ég þarf að leggja á mig smá vinnu til að komast yfir þessi meiðsli en sem stendur hlakka ég til að komast aftur á völlinn og vonandi að hjálpa liðinu að komast upp.\" sagði Chadwick.
,,Ég naut þess virkilega að vera hérna fyrr á tímabilinu. Mér fannst ég aðlagast vel þó ég hafi verið á láni og stuðningsmennirnir voru frábærir í minn garð. Ég komst í form, var að spila reglulega og naut þess virkilega að spila. Vonandi mun ég geta haldið áfram þar sem ég hætti.\"

Heimild: BBC