Fotbolti.net
02.01.09 - 12:30
Davíð Örn Atlason

Serbarnir komnir til Manchester United (Staðfest)

Tosic, sem er hér vinstra megin í landsleik gegn Argentínu er kominn til Manchester United.

Tosic, sem er hér vinstra megin í landsleik gegn Argentínu er kominn til Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Zoran Tosic og Adem Ljajic hafa náð samkomulagi við Manchester United að ganga til liðsins frá Partizan Belgrade.
United tilkynntu fyrir nokkrum mánuðum síðan að þeir hefðu samið um kaupverð á leikmönnunum og hafa þeir verið að semja við leikmennina í smá tíma.

Sá orðrómur kom upp að Arsenal og Manchester City ætluðu sér að reyna að fá leikmennina, en svo varð ekki.

Tosic kemur til United í næstu viku og verður leikfær með liðinu, en Ljajic verður áfram í Serbíu og klárar tímabilið þar.

Tosic, sem er 21 árs gamall og er talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu um þessar mundir fær treyju númer fjórtan hjá félaginu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.