Fotbolti.net
02.01.12 - 11:16
Magnús Már Einarsson

Federico Macheda til QPR (Staðfest)

Federico Macheda til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið Federico Macheda framherja Manchester United á láni út tímabilið. Þessi tvítugi leikmaður mun meðal annars berjast við Heiðar Helguson um sæti í liðinu hjá QPR.
Macheda var í láni hjá Samdporia síðari hlutann á síðasta tímabili en hann verður nú hjá QPR fram á sumar þar sem hann mun leika í treyju númer 33.

,,Ef við getum komið boltanum í rétt svæði þá er ég viss um að hann getur skorað nokkur mörk fyrir okkur,\" sagði Neil Warnock stjóri QPR.

,,Þetta er frábær byrjun á félagaskiptaglugganum fyrir okkur. Ég hef sagt að við viljum fá nokkra unga stráka inn og það er það sem við ætlum að gera.\"

Hér að neðan má sjá myndband af markinu sem skaut Macheda fram á sjónarsviðið en hann skoraði þá sigurmark í viðbótartíma gegn Aston VIlla í apríl árið 2009.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.