Fotbolti.net
02.01.12 - 15:15
Magnús Már Einarsson

Gylfi Þór Sigurðsson til Swansea (Staðfest)

Gylfi Þór Sigurðsson til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Kvennalandslið
Swansea hefur fengið Gylfa Þór Sigurðsson á láni frá Hoffenheim út tímabilið en þýska félagið staðfesti þetta í dag.
Hoffenheim keypti Gylfa á sex milljónir punda frá Reading árið 2010 og síðasta tímabili var hann valinn leikmaður ársins að mati stuðningsmanna.

Gylfi Þór hefur aftur á móti fengið fá tækifæri með Hoffenheim á þessu tímabili.

Þessi 22 ára gamli leikmaður fær nú tækifæri til að sýna sig og sanna hjá Swansea en knattspyrnustjóri liðsins er Brendan Rodgers sem gaf Gylfa hans fyrsta tækifæri með Reading á sínum tíma.

,,Við vonum að Gylfi fái nauðsynlegan spiltíma til að ná aftur fyrri styrk,\" sagði Ernst Tanner yfirmaður íþróttamála hjá Hoffenheim.

Gylfi gæti leikið sinn fyrsta leik með Swansea þegar liðið mætir Barnsley í enska bikarnum á laugardag. Hann gæti síðan leikið sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Arsenal þann 15. janúar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.