02.02.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Theofanis Gekas til Portsmouth (Staðfest)

Theofanis Gekas í gríska landsliðsbúningnum.

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið gríska framherjann Theofanis Gekas á láni frá Bayer Leverkusen út tímabilið. Gekas sem er 28 ára gamall kemur þó með þeim fyrirvara að hann fái atvinnuleyfi á Englandi en eftir að lánssamningnum lýkur á Portsmouth möguleika á að kaupa hann.
Tony Adams stjóri Portsmouth telur að Grikkinn muni verða góð viðbót við hóp Portsmouth en hann hefur áður orðið markahæsti leikmaður þýsku Bundesligurnnar.
,,Markaskorunarhlutfall hans er frábært og hann er alltaf líklegur til að skora mörk,\" sagði Adam á vefsíðu félagsins.
,,Hann er alltaf á öxlinni á síðasta varnarmanni, hann vill fara fyrir aftan vörnina og hann hefur frábært auga fyrir mörkum. Vonandi heldur það áfram hjá Pompey. Hann spilar með gríska landsliðinu og kom nýlega inná gegn Ítalíu og skoraði.\"
,,Fyrir tveimur árum síðan var hann markahæsti leikmaður Bundesligunnar. Bundesligan er frábær deild, svo það er ekkert auðvelt. Ég held að hann sé mjög áhugasamur um að koma í úrvalsdeildina og skora mörk fyrir okkur.\"

Heimild: Sky