Fotbolti.net
02.02.09 - 13:21
Hafliði Breiðfjörð

Angelos Basinas til Portsmouth (Staðfest)

Angelos Basinas.

Angelos Basinas.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur gengið frá samningi við gríska landsliðsfyrirliðann Angelos Basinas. Basinas sem er 33 ára gamll kemur frá AEK í Aþenu og gerir 18 mánaða samning við Portsmouth.
,,Við höfum fengið inn mann með gríðarlega mikla reynslu, núverandi fyrirliða Grikklands sem er aðeins þremur leikjum frá því að spila sinn 100 landsleik fyrir þjóð sína,\" sagði Peter Storrie framkvæmdastjóri Porstmouth á vefsíðu félagsins.

,,Hann er nákvæmlega það sem okkur vantar í þeirri stöðu sem við erum í . Hann er leikmaður sem Tony (Adams knattspyrnustjóri) lagði mikla áherslu á að fá til Pompey.\"

,,Hann hafði mikla löngun til að koma hingað og við eigum möguleika á að fá hann í ár til viðbótar við þessa 18 mánuði.\"


Basinas lék 15 leiki með AEK Aþenu á tímabilinu eftir að hafa komið frá Real Mallorca í sumar.

Heimild: Vefsíða Portsmouth

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.