Fotbolti.net
02.02.09 - 14:35
Hafliði Breiðfjörð

Henri Camara til Stoke City á láni (Staðfest)

Henri Camara.

Henri Camara.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City hefur nú landað einum leikmanni á lokadegi félagaskiptanna því framherjinn Henri Camara hefur verið lánaður til félagsins frá Wigan Athletic út tímabilið.
Camara sem er 31 árs gamall mun auka breiddina í framlínu félagsins. Hann verður fimmti Senegalinn í liði Stoke City.

Fyrir voru hjá félaginu landar hans Abdoulaye Faye, Amdy Faye, Ibrahima Sonko og Salif Diao.

Camara er kraftmikill framherji sem hefur verið í fjögur ár hjá Wigan þar sem hann skoraði 20 mörk í aðeins 46 leikjum fyrir félagið.

Heimild: Vefsíða Stoke City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.