02.02.09 - 14:42
Hafliði Breiðfjörð
Man City lánar Jo til Everton (Staðfest)

Jo fagnar í treyju Manchester City. Hann fer nú til Everton.

Mynd: Getty Images

Jo fagnar í treyju Manchester City. Hann fer nú til Everton.

Mynd: Getty Images
Everton hefur komist að samkomulagi við Manchester City um að fá brasilíska landsliðsmanninn Jo á láni út tímabilið. Fulltrúar félaganna hittust á laugardagskvöld þar sem gengið var frá þessu og Jo samþykkti svo í dag persónulega skilmála og mætti á æfingasvæði Everton í morgun.
Jo er 21 árs gamall og kom til Manchester City á 18 milljónir punda frá CSKA Moskvu í sumar. Hann hefur 12 sinnum verið í byrjunarliði Manchester City og skorað í þeim leikjum þrjú mörk.
Jo á að baki þrjá landsleiki fyrir Brasilíu. Hann vakti mikla athygli þegar hann skoraði 30 mörk í 50 leikjum í rússnesku deildinni með CSKA Mosvku en þangað hafði hann komið frá Corinthians í heimalandinu árið 2006.
Hann fær treyjunúmerið 11 hjá Everton og er kærkomin viðbót við hópinn enda Yakubu og James Vaughan frá keppni út tímabilið vegna meiðsla og Louis Saha enn að jafna sig af meiðslum.

Heimild: Vefsíða Everton