02.02.09 - 16:01
Hafliði Breiðfjörð
N\'Zogbia til Wigan - Ryan Taylor til Newcastle (Staðfest)

Charles N\'Zogbia er orðinn leikmaður Wigan.

Mynd: Getty Images

Newcastle United og Wigan Athletic hafa komist að samkomulagi um leikmannaskipti. Charles N\'Zogbia gengur í raðir Wigan og Ryan Taylor gengur í raðir Newcastle United í staðinn.
N\'Zogbia kláraði læknisskoðun hjá Wigan í dag og skrifaði í kjölfarið undir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Við það tækifæri sagði hann: ,,Ég get ekki beðið eftir að byrja.\"
Steve Bruce stjóri Wigan var hæstánægður með kaupin en N\'Zogbia sem er U21 árs landsliðsmaður Frakka verður dýrasti leikmaður Wigan frá upphafi. ,,Ég held að þessi drengur eigi eftir að verða virkilega góður leikmaður hjá okkur. Hann er eldfljótur fram á við en getur líka spilað varnarhlutverk og tekið vinstri kantinn sem okkur hefur vantað mann á.\"
Ryan Taylor skrifaði svo undir samning við Newcastle United og verður kærkomin kaup fyrir félagið ef ekki bara fyrir þá staðreynd að þessi varnarmaður sem skorar ekki oft hefur skorað fjögur af síðustu sex mörkum sínum gegn Newcastle.

Heimild: Vefsíða Wigan