Fotbolti.net
02.02.09 - 16:06
Magnús Már Einarsson

Magnús Páll Gunnarsson til Wuppertaler (Staðfest)

Magnús Páll Gunnarsson til Wuppertaler (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Magnús Páll Gunnarsson framherji Breiðabliks hefur samið við þýska 3.deildarliðið Wuppertaler SV.
Magnús Páll hefur æft með Wuppertaler undanfarna daga en hann hefur gert fimm mánaða samning við þýska félagið eða til 30.júní næstkomandi.

,,Þetta er fimm mánaða samningur og þetta er tækifæri fyrir mig til að sanna mig í þýska boltanum. Ef það gengur vel þá vonast ég til þess að félagið geri áframhaldandi samning við mig,\" sagði Magnús Páll við Fótbolta.net í dag.

Magnús Páll hefur fengið leikheimild með Wuppertaler en félagaskiptin gengu í gegn í dag í tæka tíð fyrir lokun félagaskiptagluggans.

Á síðustu leiktíð skoraði Magnús Páll tvö mörk í 21 leik í Landsbankadeildinni en árið áður skoraði hann átta mörk í sautján leikjum og fékk fyrir vikið bronsskóinn.

Wuppertaler SV leikur eins og fyrr segir í 3.deildinni í Þýskalandi en liðið er sem stendur í 18.sæti með jafnmörg stig og Dynamo Dresden sem er í 17.sætinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.