02.02.09 - 16:50
Hafliði Breiðfjörð
Olivier Dacourt til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Frakkinn Olivier Dacourt er genginn í raðir Fulham á láni frá Inter Milan út tímabilið en þetta staðfesti Fulham á vefsíðu sinni í dag.
Dacourt sem er 30 ára gamall þekkir vel til á Englandi þar sem hann kom fyrst til Everton frá Strasbourg árið 1998 og spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni gegn Aston Villa.
Dacourt hefur einnig leikið með Lens, Leeds United og Roma. Eftir að hafa tapað í ítalska bikarnum gegn Inter tímabilið 2005-2006 gekk hann í raðir Inter frá Roma á frjálsri sölu og gerði tveggja ára samning.
Hann var í miklum metum hjá stuðningsmönnum Inter Milan sem kölluðu hann hershöfðingjann.
Hann á að baki 21 landsleiki með Frökkum.

Heimild: Vefsíða Fulham