02.02.09 - 17:50
Magnús Már Einarsson
Robbie Keane til Tottenham (Staðfest) (Uppfært)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt Robbie Keane frá Liverpool á tólf milljónir punda en kaupverðið mun hækka eftir því hvernig leikmanninum gengur hjá Spurs.
Félögin komust að samkomulagi um kaupverð fyrr í dag og nú hefur Keane staðiðst læknisskoðun og skrifað undir fjögurra ára samning við Tottenham.
Liverpool keypti Keane frá Tottenham á 20,3 milljónir punda síðastliðið sumar. Hann fann sig hins vegar ekki hjá Liverpool og hann var meðal annars ekki í leikmannahópnum gegn Chelsea í gær sem og gegn Everton á dögunum.
Alls lék Robbie Keane 28 leiki á ferli sínum með Liverpool og skoraði í þeim sjö mörk.
,,Það var erfið ákvörðun að yfirgefa Tottenham síðastliðið sumar. Það reyndist ekki rétt ákvörðun hjá mér,\" sagði Keane við heimasíðu Tottenham nú síðdegis.
,,Ég veit að ég olli vonbrigðum hjá sumum stuðningsmönnum þegar að ég fór en ég get lofað þeim að ég mun gefa allt mitt fyrir félagið. Þetta félag hefur frábæra stuðningsmenn og ég vil endurgjalda þeim allan stuðninginn. Við þurfum að halda áfram að berjast við að komast upp töfluna.\"
Keane er þriðji leikmaðurinn sem Harry Redknapp stjóri Tottenham fær aftur til félagsins eftir stutta dvöl annars staðar. Áður hafði Tottenham fengið Jermain Defoe aftur frá Portsmouth og Pascal Chimbonda aftur frá Sunderland.

Heimild: Heimasíða Tottenham